Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Atburðarteljari

Fattaði e-r?

03. maí 2007 klukkan 01:13
Þessi færsla er eingöngu ætluð þeim sem föttuðu vísbendingu Gogga! Ókei, þið sem fattið látið heyra í ykkur!
(vá hvað ég hljóma eins og útkókuð bloggstelpa sem var að verða 12 ára).

Hljómið hér!  

http://kibbi.blogspot.com
Kibbi

Ókei

02. maí 2007 klukkan 01:11
Nú kemur færsla af mínum eigin dugnaði! Það veit enginn, nema Goggi, að ég hef endurvakið bloggið !
Ekki einusinni Sif hefur dottið í hug að kíkja hérna inn! Ég meina, ég kíki oft inná bloggið hans Eika í þeirri von að honum hafi dottið í hug að blogga! MAÐUR VEIT ALDREI! Ég skora samt Gogga á að búa til e-a vísbendingu fyrir fólk að ég sé byrjaður að blogga...! Þetta er bara svona einkaspjall okkar á milli!

Ójá, ég er að blogga því prófið mitt er klukkan 3 á morgun, jább. 15:00! Ekki 09:00 eins og ég hélt. Svo ég var stressaður... en núna er ég kærulaus. Gott plan!

Dæræræ, Dúdírei

Bæ, Goggi!
Kibbi

Vá!

27. apríl 2007 klukkan 01:19
Núna er það all svakalegt! Goggi kom með nýja gjöf og enn og aftur er það e-ð sem vert er að blogga um!

Myndasögur! Þær súrar!Myndasaga
http://www.pbfcomics.com/
Go nuts!

Á morgun er það svo ritgerðarpróf í 4 klukkustundir. Megi Guð vera okkur nálægur!
Untill next time...þar til næst
Friður

Það eru próf

20. apríl 2007 klukkan 01:29
Vá, þetta er ennþá til.

Goggi sendi mér nýtt lag í dag:
Queens of the stone age - Era Vulgaris

Það var bara tilefni til bloggfærslu, ef þú veist ekki afhverju þá bara er það þannig.

Þar til næst, bæ!
Kibbi

BLOGG!

28. júní 2006 klukkan 01:31
Hæ!
Ég hef ekki bloggað í smá tíma... það eru þrjár sumarbústaðarferðir síðan! :P í frekar stuttu máli þá voru ferðirnar svona: (Ekki rétt tímaröð(Hugsanlega))

Hestvík: Skrapp með Sif að hitta tengdó og eyddi kvöldinu í að seðja spilafíkn minni á skítakall, núllu og ólsen! Svo var farið í rómantíska næturgöngu í ljósa myrkrinu!

Stórfjölskylduferð: Party & Co. með bjór er hörkugaman! Fjölskyldan og öll börnin tvö fóru í hörkugaman ferð og það var bara hörkugaman! Heitur pottur og læti.

Haukdælingahelgi: Ættarmót hjá Haukdælingum! Furðulegt lið! Stórskemmtilegt þar af leiðandi ;) Heljarinnar fyllerí og kibbinn edrú, minn var ekkert svo sáttur með það. Allir á kúpunni og þá sérstaklega Hreiðar Guðmundsson markvörður íslenska landsliðsins í handknattleik. (VÁ CELEB) Og Andrés Hörkutól Guðmundsson, sem er stærri en ísbjörn og liðugri en köttur! MOJ ! Hann kemur ekki höndunum saman, þó vegna massa en ekki látalátum eins og hjá Guðna Ellert! Mjög fínt fólk. Svo var Árni Johnsen, fyrrum fangi og BYKO prettari á svæðinu að skemmta fólki langt fram á nótt, hörkugóð helgi.

Nú er fyrsti dagur einsemdarinnar genginn í garð þar sem Sifin fór til Kanarý í dag. Grey Kibbi litli:(
Þá er bara lag að hringja í alla þá sem maður hefur hundsað og snuðað síðustu þrjár vikur og taka lífinu með glens og gaman! Plan 1: Bíó með Hadda og GZ (Ef hann svarar símanum) og svo HAM tónleikar... já ví tónleikar með HAM. Ef þeir taka ekki Musculus þá stytti ég mér aldur. Dagurinn í dag var samt sæmilegur.. var í allan dag að búa til 5 stk. uppblöndun fyrir gólfhita... ætli ég þurfi svo ekki að setja saman kisturnar á morgun líka :P (Vei vei vei)^15 (Ónei, ég hef sko engu gleymt!)

Þessi færsla er tileinkuð Eyþóri Gogga Snorrasyni.
Nei annars... fólkið sem vinnur hjá Bygg ER FOKKING LEIÐINLEGT!!!!
Allavega fokkings fokkans pípararnir...

Bæ í bili
HAM - Musculus.
- Kibbi Bloggari, HAH!

Ég er að vinna!

12. júní 2006 klukkan 05:58
Sif segir að ég bloggi lítið... og ýti bara oft á enter





Er það satt?



Ég fór í sumarbústað um síðustu helgi... það var gaman!



Ég fór í sumarbústað þessa helgi... það var gaman!!

Nú ætla ég að fara að sofa.
Endilega minnið mig á þessa síðu, hún gleymist mjög oft :)

ENTER
ENTER
ENTER
ENTER

Adios

Húrra!

25. maí 2006 klukkan 02:20
Ég náði fimmta bekk!

Það hljómar alltaf í eyrum mínum þegar dönskukennarinn minn í 4.T ávarpaði okkur Gogga og sagði: "Strákar, það er stúdentspróf í vor, og ef þið lærið ekki þá falliði!"

Við Goggi lærðum ekkert í 4. bekk.... við náðum! Oft höfum við gert gys að þessum orðum og oft hefur rignt upp í nefið á okkur, því við náðum 4. bekk án þess að læra.

Í dag lágu niðurstöður vorprófa 5. bekkjar 2006 fyrir. Ég og Goggi lærðum enn minna í 5. bekk en 4. bekk og viti menn, við getum ennþá gert grín að Ástríði (lovefuck(fliss)) dönskukennara! Ég brilleraði nú ekkert,
... 35 stig slétt í stærðfræði... hey ... I passed, right?

F-A-C-E
Ástríður Ebba.

F-A-C-E Stærðfræði.

F-A-C-E
5.M.

Hæ Alkóhól!
Byko!

Séþig eftir smá Grímur!

Queens of the stone age - Go with the flow

ÓKEI ÞÁ !

17. maí 2006 klukkan 05:50
Ég skal blogga, ég skal blogga!

Líf mitt síðan á föstudag:
Lau: Svaf yfir mig, lærði og fór svo í badminton og fékk harðsperrur í vinnukonuna. Endaði kvöldið hjá Sif og það var mjög næs

Sunnudagur: Reglur lærðar á fullu, ég kunni þær allar upp á 10! Kvöldið fór í smá stress og meira lær. Og já, harðsperrunar fóru ekki.

Mán: STRESS OG BIÐ! Reglurnar sem ég kunni upp á 10, kunni ég bara ekki eftir 8 klst bið í MR með Snæfríði og Þóru. Sigríður (stæ. kennari) var samt næs, ekkert alltof cruel.

Þriðjudagur: Svaf AFTUR yfir mig, reiknaði dæmi og dæmi og dæmi. Nú kann ég að finna Vm(f) allra falla og ég kann að tegra! Og svo ef ég þarf að færa e-n hlut fyrir e-ð horn og efast um að ég komist.... þá get ég diffrað og komist að því hvort hann kemst!! VEI!

Miðvikudagur: Stress. Próf. Rest kemur í ljós. Eitt er samt víst að vinnukonan er ennþá slöpp :(

Untill next time...

Líffræði 0 - 1 Kibbi

11. maí 2006 klukkan 07:44
Rúst! Margrét Yrsa Richter hefur pottþétt aldrei séð betri ritgerð um Neanderdalsmennina en sú sem ég skrifaði í dag. Þetta próf gekk mjög vel fyrir sig að tvöfaldri frjóvgun aðskildri. Ha? Hvað segiði? Nóg um skóla?
Kei.
Þá hef ég bara ekkert meira að segja, annað en ég vil koma þökkum til Hadda Squid: Ég spila varla aðra diska núna en From under the cork tree. Haddi loverboj.

Grímur: Puh.

Bæbæ!

Fámæltur.

08. maí 2006 klukkan 02:04
Ég hef voða lítið að segja. Systurnar fyrir ofan mig eru allar að rífast... allar 3! Þetta er bara fáránlegt, þær öskra og öskra og öskra! Það er samt eðlilegra en að bræður poti penna í eyrað á hvorum öðrum (fliss) það eina sem ég hef að segja núna er :

Most acidic substances are weak acids and are therefore only partially ionized in aqueous solution! Vííí


Læri, hei kúl! SMS

Verð að enda þetta á brandara frá Hadda sem hann fékk frá Eika:
Hvað þarf marga menn með athygglisbrest til að skipta um ljósaperu?
...
...
...
Hei! Förum að hjóla! 17. Kafli here I come